fbpx

Finnum lausnir sem styðja við sjálfbæra þróun og hringrásarhagkerfið

Ísland hefur skýrt for­skot með fram­boði af endur­nýjanlegri orku og einstakt tæki­færi til að skipa sér í forystu á alþjóða­vísu í umhverfis­málum   

Hringiða er viðskiptahraðall með áherslu á sjálfbærni og hefur það að markmiði að draga fram, efla og styðja við nýsköpunarverkefni á frumstigi.

Þungamiðja Hringiðu felst í skipulögðum vinnustofum og fundum með sérfræðingum úr hópi mentora frá KLAK VMS. Framfarir þátttakenda undir handleiðslu mentoranna skila sér í stórauknum líkum á að sprotarnir nái árangri, íslensku samfélagi til hagsbóta.

Hlutverk Hringiðu er að stuðla að því að á Íslandi rísi öflug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, skapi verðmæt og áhugaverð störf og skili árangri í umhverfis- og loftslagsmálum á Íslandi.

Um er að ræða ferli þar sem allt að tíu sprotaverkefnum á fyrstu stigum er veittur aðgangur að breiðu tengslaneti leiðbeinenda úr atvinnulífinu og markvissri þjálfun.

Umsjón með Hringiðu er í höndum KLAK – Icelandic Startups sem hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi.

Bakhjarlar eru Reykjavíkurborg, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveitan, Faxaflóahafnir, Terra, Ölgerðin og Samtök iðnaðarins. Samstarfsaðilar Hringiðu eru Rannís, Breið þróunarfélag, Evris, Sjávarklasinn, Grænvangur, Hugverkastofa, F6S og Hringrásarklasinn.

Umsóknarfrestur í Hringiðu lauk 25. febrúar 2024.

Sprotar

Níu sprotafyrirtæki á frumstigi taka þátt í Hringiðu 2024. 

Arctic Fibers

Arctic Fibers er að umbreyta lúpínu á Íslandi í aðgengileg efni fyrir byggingariðnað, textíl og fleira. Með því að koma á fót lítilli plöntutrefja-verksmiðju komum við hráefnum landbúnaðarins aftur í verk á sjálfbæran hátt. Markmið okkar eru að efla endurnýjanlega landbúnaðarhætti, styðja við endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni og stuðla að hringrásarhagkerfi hér á Íslandi. 

Circula

Recoma Ísland endurvinnur samsettar pappaumbúðir svo sem Tetra Pak og framleiðir úr þeim grænar byggingaplötur með 80-90% minna kolefnisspor en aðrar byggingaplötur. 100% endurvinnsla úrgangsstrauma hér á landi þar sem afurðin er grænt byggingarefni sem nær markmiðum byggingariðnaðarins um 55% minna kolefnisspor fyrir 2030 og gott betur.

Markmið okkar er að bjóða umhverfisvænu Ekkó toghlera okkar sem spara að meðaltali um 7,5% olíu á veiðum sem sparar fljótt verðgildi hleranna. Auk þess sem Ekkó toghlerarnir svífa yfir botninum og vernda lífríkið við botninn.

Flöff - textílvinnsla

Flöff ætlar að koma á fót fyrstu textíl endurvinnslustöðinni á Íslandi, þar sem ónothæfur textíll er brotinn niður og úr honum sköpuð ný verðmæti. Textíl úrgangur er gríðarlega stórt vandamál í heiminum og með þessari starfsemi myndar Flöff mikilvægan hlekk í hringrásarhagkerfi Íslands.

Í djúpum

Í dag er miklu af hrossataði á Íslandi fargað, með miklum tilkostnaði fyrir eigendur hesta, án þess að taðið nýtist.

Til að stemma stigu við innflutningi á moltu og áburði stefnum við að því, með ákveðnu vinnsluferli, að gera gæða vöru úr hrossataðinu, sem hægt verður að nýta í garðyrkju, ræktun o.s.frv. Þessi vara mun auka verðmæti taðsins og verða seld hérlendis, en tækniþekkinguna verður mögulegt að flytja út til annara landa.

RÓ rannsakar og hannar vitsvæna nytjahluti með áherslu á veliðan og rósemi, bygða á stadbundnum hráefnum. Við kynnum hér með RÓSEMI Legubekk, Flóru Hugleiðslu púða og RÓ Ullardýnu, unna úr ull, viði og Jurtalitum.

SeaGrowth

SeaGrowth ætlar að framleiða vistræktaðan fiskmassa úr fiskfrumum fyrir matvælaframleiðslu. Ferlið er þannig að frumsýni er tekið úr villtum heilbrigðum fiski, frumurnar einangraðar og ræktaðar upp í þartilgerðum ræktunartönkum. Fiskmassinn sem verður til, verður seldur til matvinnslufyrirtækja sem vinna úr hrávörunni fiskrétti tilbúna fyrir neytendur.

 

VELJA

Velja er hugbúnaðarlausn sem býður upp á fataleigu í formi ‘capsule’ fataskápa sem mætir fjölbreyttum fataþörfum einstaklinga á sjálfbæran hátt. Velja fær notuð föt beint frá einstaklingum og frá endurvinnslustöðvum og stuðlar þannig að bættu hringrásarhagkerfi. Velja stefnir að vexti með sérleyfum þar sem frumkvöðlar geta nýtt sér hugbúnaðarlausn, ferla og markaðsímynd Velja í eigin rekstri.

Visttorg

Visttorg safnar sjálfbærniupplýsingum fyrir byggingarvörur og setur þær á aðgengilegt stafrænt form til að einfalda skilning hönnuða á hvernig val á byggingarefnum hefur áhrif á vistvæni byggingarinnar.

 

Fyrirkomulag

Hringiða hófst 11. mars 2024 og mun stendur yfir í 6 vikur og  um ræðir ferli þar sem níu sprotaverkefni á fyrstu stigum hefur verið veittur aðgangur að breiðu tengslaneti leiðbeinenda úr atvinnulífinu og markvissri þjálfun. 

Þungamiðja Hringiðu felst í skipulögðum vinnustofum og fundum með sérfræðingum úr hópi mentora frá KLAK VMS. Framfarir þátttakenda undir handleiðslu mentoranna skila sér í stórauknum líkum á að sprotarnir nái árangri, íslensku samfélagi til hagsbóta.

Fyrirkomulag

Hringiða hefst 11. mars 2024 og stendur yfir í átta vikur og er frí yfir páskahátiðina. Dagskráin fyrir Hringiðu verður birt fljótlega.

Vika 1

14.-15. mars - Evrópustyrkir og teymisvinna

1

Í fyrstu viku hraðalsins kynnast þátttakendur og mynda tengsl sín á milli. Fyrirlestrar um Evrópustyrki og þátttöku Íslands í LIFE-áætluninni. Vinnustofa í árangursríkri teymisvinnu. 

Vika 2

21.-22. mars- Þarfagreining og fjárfestar

7

Vinnustofa í þarfagreiningu með Magnúsi Inga Óskarssyni. Undirbúningur fyrir samtal við fjárfesta. Heimsókn á Grundartanga. 

Vinnustofa í markaðssetningu.

Fyrstu mentorafundirnir fara fram. 

Vika 3

28.-29. mars

Hringiðu hádegi – viðburður

Vika 4

3.-7. apríl

Frívika

Vika 5

11.-13. apríl

Vinnustofa í þarfagreiningu. Teymin kynna verkefnin sín fyrir hákörlum (e. shark tank) og fá endurgjöf. Framkomunámskeið með Maríu Ellingsen til að undirbúa þátttakendur fyrir viðburð. Mentorafundir. 

Vika 6

18 - 19. apríl Aðgerðaráætlun og sókn á erlenda markaði

2

18. mánaða aðgerðaáætlun. Vinnustofa í hugverkarétti. Vinnustofa í  sókn á erlenda markaði. 

Vika 7

25.-26. apríl - Inspiralia

4

Inspiralia koma til landsins og halda vinnustofu og hitta teymin á ráðgjafafundum.

Vika 8

2.-4. maí - Aðgerðaráætlun og fjárfestakynningar

5

Rannís vinnustofa í Evrópustyrkjum og framkomuþjálfun fyrir fjárfestadag Hringiðu. 

Mentorar

KLAK  VMS er hluti af dagskrá Hringiðu. Mentoraþjónusta KLAK – Icelandic Startups er einn mikilvægur hlekkur í stuðningskerfi Hringiðu. 

Mentora fyrirkomulag Hringiðu byggir á hugmyndafræði MIT  Venture Mentoring Service, sem hafa þróað fyrirkomulag í yfir tvo áratugi. Þátttakendur í Hringiðu munu funda með tveimur til fimm mismunandi mentorum í einu á meðan viðskiptahraðlinum stendur.

Mentorar

KLAK  VMS – Mentoraþjónusta KLAK er einn mikilvægasti þáttur í stuðningskerfi sprotasamfélagsins og er því hluti af Hringiðu. 

Mentora fyrirkomulag Hringiðu byggir á hugmyndafræði MIT  Venture Mentoring Service, sem hafa þróað fyrirkomulag í yfir tvo áratugi. Þátttakendur í Hringiðu munu funda með tveimur til fimm mismunandi mentorum í einu á meðan viðskiptahraðlinum stendur.

mennta- og barnamálaráðuneytið

Arnór Guðmundsson

vertu

Ágúst Freyr Takács Ingason

stratagem

Ása Karin Hólm

svartitindur

Bárður Örn Gunnarsson

e4

Daddi Guðbergsson

Dagný Halldórsdóttir

míla

Erik Figueras Torras

stofnandi meniga

Georg Lúðvíksson

faxaflóahafnir

Gunnar Tryggvason

lagerinn iceland

Halldór Sigurjónsson

háskólinn á bifröst

Haraldur Daði Ragnarsson

Kirstín Flygenring

háskóli íslands

Kristín Vala Ragnarsdóttir

instrúment

Kristján Schram

kvika eingastýring

Pétur Richter

orkuklasinn

Rósbjörg Jónsdóttir

Controlant

Sævar Garðarsson

Háskóli íslands

Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch

landspítali

Sigurður Þórarinsson

Bravoearth

Vilborg Einarsdóttir

Stýrihópur

Fulltrúar bakhjarla mynda stýrihóp verkefnisins. Stýrihópur verkefnisins tekur meðal annars þátt í yfirferð umsókna og vali á þeim viðskiptahugmyndum sem býðst þátttaka í hraðlinum.

d2471bf0-4d1c-406f-960b-fa8802694b43
Reykjavíkurborg

Hulda Hallgrímsdóttir

output_image (1)
Reykjavíkuborg

Óli Örn Eiríksson

1
samtök iðnaðarins

Nanna Elísa Jakobsdóttir

2
Tæknisetur

Guðbjörg Óskarsdóttir

Orkuveita reykjavíkur

Arna Pálsdóttir

ORkuveita reykjavíkur

Birna Bragadóttir

4
UMHVERFIS-, ORKU- OG LOFTSLAGSRÁÐUNEYTIÐ

Kjartan Ingvarsson

5
Breið

Valdís Fjölnisdóttir

6
Ölgerðin

Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir

Terra

Gróa Björg Baldvinsdóttir

HRINGRÁSARKLASINN

Þorbjörg Sandra Bakke

faxaflóahafnir

Gunnar Tryggvason

stýrihópur Hringiðu (1)
Evris

Anna Margrét Guðjónsdóttir

8
Grænvangur

Nótt Thorberg

Rannís

Gyða Einarsdóttir

stýrihópur Hringiðu (3)
Orkuklasinn

Rósbjörg Jónsdóttir

sjávarklasinn

Þór Sigfússon

Bakhjarlar

Samstarfsaðilar

is_ISIcelandic